Leita í fréttum mbl.is

Fjárhættuspil

Hvernig er það, er ekki flugrekstur áhættubissness?  Ótrúlegt að lífeyrissjóðirnir skuli ætla að fjárfesta í  Icelandair.  Flugfélög alls staðar í  heiminum eiga í basli, ekki bara vegna samkeppni, heldur líka vegna ófyrirsjáanlegrar áhættu af flugslysum, og ég tala nú ekki um eldgosum......  en það er kannski of langt síðan Eyjafjallajökull kyrrsetti flugumferð í heiminum til að lífeyrissjóðsmenn muni eftir því, hvað veit ég.  Flugfélög um allan heim, þar á meðal á Íslandi, töpuðu milljörðum.  

Með svona vitringa við stjórnvölinn er það nú ekki beint tilhlökkunarefni að verða gamall á Íslandi, og ekki er hægt að segja að það sé gæfulegt að vera gamalmenni á Íslandi í dag, þegar lífeyrissjóðirnir eru hver af öðrum að skerða áunnin réttindi fólks.  

Ég vona að stjórnendur Icelandair skilji ábyrgð sína og átti sig á því að þeir eru að gambla með fjöregg almennings, - lifibrauð hans í ellinni.


mbl.is Spenntir fyrir Icelandair
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Það eru tveir menn sem stýra lífeyrissjóðunum þegar upp er staðið. Og eins og allir vita þá heita þeir Hrafn Magnússon og Arnar Sigurmundsson.

Hrafn þekki ég ekki en Arnar er góður fjármálamaður. 

Árni Gunnarsson, 29.6.2010 kl. 16:04

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Góður fjármálamaður er ekki til á landi voru!

Sigurður Haraldsson, 29.6.2010 kl. 23:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bergþóra Jónsdóttir
Bergþóra Jónsdóttir

Spurt er:

Á að aðskilja ríki og kirkju?
Er flokkakerfið úrelt?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 49454

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband