Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Dægurmál

Hitabylgja

Ætli félagsmálaráðherra sé ekki orðið ansi heitt á bossanum núna?
mbl.is Ásta dregur umsókn til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ha?

Hahahaha hæhíhí ho ho hó hóhó hóhaha hahahahahaha híhíhíhí híhíhehehehehehe hóhóhóho hohohohehehe æ æ æ æ (bakföll) hæhíhí ho ho hó hóhóh ha hahahahahaha híhíhíhí híhíhehehehehehe hóhóhóho hohohohehii í hahahaheheheho ho hó hí hí..... æ mér er mál að pissa...
mbl.is SUS: Ekki frjálshyggjunni að kenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjárhættuspil

Hvernig er það, er ekki flugrekstur áhættubissness?  Ótrúlegt að lífeyrissjóðirnir skuli ætla að fjárfesta í  Icelandair.  Flugfélög alls staðar í  heiminum eiga í basli, ekki bara vegna samkeppni, heldur líka vegna ófyrirsjáanlegrar áhættu af flugslysum, og ég tala nú ekki um eldgosum......  en það er kannski of langt síðan Eyjafjallajökull kyrrsetti flugumferð í heiminum til að lífeyrissjóðsmenn muni eftir því, hvað veit ég.  Flugfélög um allan heim, þar á meðal á Íslandi, töpuðu milljörðum.  

Með svona vitringa við stjórnvölinn er það nú ekki beint tilhlökkunarefni að verða gamall á Íslandi, og ekki er hægt að segja að það sé gæfulegt að vera gamalmenni á Íslandi í dag, þegar lífeyrissjóðirnir eru hver af öðrum að skerða áunnin réttindi fólks.  

Ég vona að stjórnendur Icelandair skilji ábyrgð sína og átti sig á því að þeir eru að gambla með fjöregg almennings, - lifibrauð hans í ellinni.


mbl.is Spenntir fyrir Icelandair
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Merkilegt...

...að Bandaríkjamönnum skuli ennþá, árið 2010, þykja þetta fréttnæmt, og að þeir haldi sérstakt bókhald yfir litarhátt þeirra sem ganga í hjónaband.
mbl.is Blönduð hjónabönd aldrei fleiri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón Valur!

Stundum er gott að láta aðra taka ákvarðanir fyrir sig, Jón Valur. Ég veit þeir verða margir sem kjósa Sóleyju Tómasdóttur eftir að hafa lesið tilskrif þín við þessa frétt.  Varla líður þér vel sitjandi á því skítaforaði sem þú eyst reglulega af yfir menn og málefni.  Orðbragð þitt sem opinberar ekkert annað en mannfyrirlitningu og sjúklegan ótta við skoðanir annarra sæmir ekki manni sem vill kalla sig kristin.  Sennilega er það fleira sem hrjáir þig.

Og guði sé þökk fyrir fegurðina!

- eða skynja ég vott af öfundsýki?


mbl.is Oddviti VG á kjörstað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugarfarsbúrkur!

Þegar umræðan snýst um það hvað konum eigi að líðast og hvað ekki er mér nóg boðið.  Hvernig væri að snúa umræðunni upp í það að konum og reyndar öllu fólki sé frjálst að klæða sig eins og því sýnist og á þann hátt sem það sjálft kýs, án tillits til trúarbragða, stöðu, menningar, samfélags og annarra þátta sem streitast við að sníða fólk í sín einsleitu form og staðalímyndir.

Undirtónninn í Frakklandi er auðvitað sá að blæjubannið snýst um ótta vestrlænu samfélaganna við islam.  Dettur kristnu fólki í hug að banna nunnum að ganga með sínar slæður eða höfuðbúnað?  Höfum við ekki öll þann þroska að umbera það að nunnur gangi með fáránlegan höfuðbúnað ef þær kjósa svo?

Grunngildin eiga ekki að felast í því að banna konum að klæða sig á þann hátt sem þær kjósa, þau eiga að snúast um að frelsi þeirra til að vera eins og þeim sýnist sé tryggt.  Það er það eina sem skiptir máli.  

Auðvitað þýðir það það, að engin kona á að þurfa að ganga í búrku gegn vilja sínum, og auðvitað vitum við að stór hluti kvenna gengur í slíkum klæðnaði vegna samfélagslegs og trúarlegs þrýstings. Það er það sem þarf að uppræta.  Sorglegast er að þrýstingurinn og kúgunin eru sterkust í afdönkuðum karlasamfélögum þar sem konur hafa minnst um frelsi sitt að segja.  Þar er verk að vinna við að rétta hlut kvenna og það er brýnt og mikilvægt verkefni.  Á nákvæmlega sama hátt eiga konur rétt á því að flíka kvenleika sínum ef þeim sýnist og langar til, án þess að vera dæmdar fyrir léttúð og lauslæti.  Franskar konur hafa hingað til kunnað vel að meta þann rétt sinn.  Það er óþolandi þegar kvenlíkaminn er stöðugt gerður að skotspóni hugmynda um hreinleika eða glyðruhátt og konur dæmdar og fordæmdar fyrir útlit sitt - í hvora áttina sem það er!  Þetta er einfaldlega í þeirra eigin höndum, hafi hugmyndir um sjálfsákvörðunarrétt konnunnar yfir eigin líkama og þar með útliti yfir höfuð eitthvert gildi.

Þessa fáránlegu umræðu þarf að rífa upp úr því fari að snúast um það hvað konur mega og mega ekki, og beina henni inn á þá braut að konur eigi að vera frjálsar að því að vera eins og þeim sýnist, burt séð frá ÖLLU öðru.  Við þurfum að vinna saman að því að sá réttur sé þeim tryggður svo að umburðarlyndi og náungakærleikur fái þrifist á ný.

   


mbl.is Ver bann við blæjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Múmínmamma ögrar stórveldi

Magnað að vinir mínir yndislegu í Múmíndal skuli hafa þessi áhrif.  Hvet alla til að lesa þessar bókmenntir.  Djúp speki í fallegum búningi fyrir fullorðna ekkert síður en börn og persónur sem allir þekkja í sjálfum sér og öðrum. 
mbl.is Múmínálfarnir vekja áhyggjur í Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brauðbakstur

Eftirfarandi skrifaði ég um daginn á Facebook:

"Bergþóra Jónsdótt hugsar um allt góða íslenska byggið og hveitið frá Þorvaldseyri sem hefur farið í brauðbakstur á heimilinu síðustu misserin og vonar að undir jöklinum þrífist áfram bleikir akrar og slegin tún, þrátt fyrir hamfarirnar núna."

Manni þótti það ótrúlegt þegar hægt var að kaupa í fyrsta sinn alíslenskt kornmeti til brauðgerðar. Svo kom það ánægjulega í ljós, að þetta var gæðavara sem gerði allt brauð miklu betra.   Það yrði synd ef kornræktin leggðist af, og ég vona að til þess komi ekki.  Brauð með venjulegu útlendu verksmiðjuhveiti er ekki það sama og brauð sem bætt er með þessu bragðmikla og kjarngóða íslenska korni.  Ég óska bændum eystra alls hins besta og vona að þetta fari allt vel. 


mbl.is Gerir hlé á ræktun og búskap
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning

Er ekki varamaðurinn, Óli Björn Kárason líka viðfangsefni skýrslunnar fyrir óeðlilegar lántökur?
mbl.is Þorgerður stígur til hliðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samúð?

Ósköp hef ég litla samúð með launakröfum flugvirkja og flugumferðarstjóra eins og staðan er í samfélaginu núna.  Biðraðir eftir matarhjálp og fólk með þokkalegustu laun að væla um meira.  Þetta er ekki taktískt.  Steingrímur þarf að tala við þetta fólk með tveimur hrútshornum svo það átti sig á því í hvaða samfélagi það er statt.  Þeir hafa þó vinnu, og það er meira en margur annar hefur.
mbl.is Sáttafundum slitið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Bergþóra Jónsdóttir
Bergþóra Jónsdóttir

Spurt er:

Á að aðskilja ríki og kirkju?
Er flokkakerfið úrelt?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband