Leita í fréttum mbl.is

Hugarfarsbúrkur!

Þegar umræðan snýst um það hvað konum eigi að líðast og hvað ekki er mér nóg boðið.  Hvernig væri að snúa umræðunni upp í það að konum og reyndar öllu fólki sé frjálst að klæða sig eins og því sýnist og á þann hátt sem það sjálft kýs, án tillits til trúarbragða, stöðu, menningar, samfélags og annarra þátta sem streitast við að sníða fólk í sín einsleitu form og staðalímyndir.

Undirtónninn í Frakklandi er auðvitað sá að blæjubannið snýst um ótta vestrlænu samfélaganna við islam.  Dettur kristnu fólki í hug að banna nunnum að ganga með sínar slæður eða höfuðbúnað?  Höfum við ekki öll þann þroska að umbera það að nunnur gangi með fáránlegan höfuðbúnað ef þær kjósa svo?

Grunngildin eiga ekki að felast í því að banna konum að klæða sig á þann hátt sem þær kjósa, þau eiga að snúast um að frelsi þeirra til að vera eins og þeim sýnist sé tryggt.  Það er það eina sem skiptir máli.  

Auðvitað þýðir það það, að engin kona á að þurfa að ganga í búrku gegn vilja sínum, og auðvitað vitum við að stór hluti kvenna gengur í slíkum klæðnaði vegna samfélagslegs og trúarlegs þrýstings. Það er það sem þarf að uppræta.  Sorglegast er að þrýstingurinn og kúgunin eru sterkust í afdönkuðum karlasamfélögum þar sem konur hafa minnst um frelsi sitt að segja.  Þar er verk að vinna við að rétta hlut kvenna og það er brýnt og mikilvægt verkefni.  Á nákvæmlega sama hátt eiga konur rétt á því að flíka kvenleika sínum ef þeim sýnist og langar til, án þess að vera dæmdar fyrir léttúð og lauslæti.  Franskar konur hafa hingað til kunnað vel að meta þann rétt sinn.  Það er óþolandi þegar kvenlíkaminn er stöðugt gerður að skotspóni hugmynda um hreinleika eða glyðruhátt og konur dæmdar og fordæmdar fyrir útlit sitt - í hvora áttina sem það er!  Þetta er einfaldlega í þeirra eigin höndum, hafi hugmyndir um sjálfsákvörðunarrétt konnunnar yfir eigin líkama og þar með útliti yfir höfuð eitthvert gildi.

Þessa fáránlegu umræðu þarf að rífa upp úr því fari að snúast um það hvað konur mega og mega ekki, og beina henni inn á þá braut að konur eigi að vera frjálsar að því að vera eins og þeim sýnist, burt séð frá ÖLLU öðru.  Við þurfum að vinna saman að því að sá réttur sé þeim tryggður svo að umburðarlyndi og náungakærleikur fái þrifist á ný.

   


mbl.is Ver bann við blæjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég  held  að   málið  snúist  ekki  alvarlega  um  slæðuna  heldur  tvær  tegundir   af    pokabúnaði  múslímakvenna,  nefnilega   ,,búrku"  og  ,,niqab" .   Búrkan  hylur  andlitið  algjörlega  en  augun  sjást  í  Niqab  búningnum.    Það  er  ,,búrkan"  sem  hefur  verið  notuð  mikið  við  búðarrán,  bankarán  og  önnur   afbrot   til  að  villa  á  sér  heimildir,  en  báðir  þessir   búningar  skapa  mikla  hættu  fyrir   aðra  vegfarendur,  ef   fólk  fer  undir  stýri  í  þeim.  ÞESSAR  TEGUNDIR  ÆTTI  AUÐVITAР AР HARÐBANNA!

 

Búrkan  og  Niqab  eru  hlutar  af  íslamskri  menningu  frá   Arabíuskaganum  og   staðfest  í  Kóraninum:

 

Qur'an 033:059 „Spámaður! Segið konum ykkar og dætrum og öllum Múslímakonum að klæðast skikkjum yfir allan líkamann (hylja sjálfar sig algerlega nema að því er varðar annað eða bæði augun, til að sjá til vegar). Það er betra."

Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 26.4.2010 kl. 22:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bergþóra Jónsdóttir
Bergþóra Jónsdóttir

Spurt er:

Á að aðskilja ríki og kirkju?
Er flokkakerfið úrelt?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband