Leita í fréttum mbl.is

Plön, plön, plön

Við erum búnar að ákveða að sunnudeginum ætlum við að eyða saman í Köben.  Fá okkur smörrebröd á Sorgenfri í hádeginu og horfa á flugeldana í Tívolí um kvöldið.  Þess á milli rölta um, fá okkur kaffi í Nýhöfn, labba strikið, kíkja í dýragarðinn og hafa það gott.  Ætlum svo að feta í fótspor Einars Ben. og Marilyn Monroe og sofa úr okkur þreytuna í Palace hótelinu við Ráðhústorgið.  Sennilega heilsum við líka upp á Margréti Þórhildi, því hún á afmæli þennan dag.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Viðar Eggertsson

Hafðu það sem best í Danaveldi Begga mín, og vonandi býður Magga Þórhildur þér uppá ístertu í boðinu :)

Viðar Eggertsson, 14.4.2007 kl. 07:56

2 identicon

Sælar dömur mínar.  Gott að vita af ykkur saman þarna hinum megin við hafið.  Mér líst voða vel á Köben daginn hjá ykkur, sérstaklega á Tívolíferðina og flugeldana, hef sjálf upplifað það og finnst allt þar krúttlegt og skemmtilegt.  Á kannski að fara í drop tækið?  Ég þori aldrei í það en  víkingaskipið er ÆÐI.  En í þykist vita að speglasalurinn sé í uppáhaldi hjá ykkur mæðgum.

 Það er að koma gestur frá Íslandi til mín á eftir.  Maraþonhlaupari sem á víst ekki von á góðu veðri hér í Boston.  

 Knús,

 Ímsí

ímsí (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 21:40

3 identicon

hej med dig din søde haj!! Nu driller jeg...

Kære søs. Haaber du har nydet DK. Eins og ég hef nú sagt þér svo oft Begga er alveg nauðsynlegt að hafa í lífinu veifað Margréti Drottningu á afmælisdegi hennar. Ég gerði þetta alveg nokkur ár í röð! Þið hafið víst ekki náð að spegla ykkur saman mæðgurnar enda langt síðan speglasalnum var pakkað saman og niður í geymslu. Tivolíið hefur aldrei opnað svona snemma á vorin - hvað er eiginlega að gerast þarna? Er allt breytt? Vá , þú heppin! En auðvitað bara æðislegt að það sé hægt að komast í Tívolí fyrir 25. apríl. Hefði alveg verið til í að upplifa ekta danskt vor. Venlig hilsen, Ó.

Ólöf Jónsdóttir (IP-tala skráð) 17.4.2007 kl. 17:29

4 Smámynd: Kjartan Valdemarsson

Brolæggerstræde 8, Sorgenfri.

Eina adressan sem ég kann í Danmörku.

Annar uppáhalds smurbrauðsstaður er Slotskælderen, hos Gitte, hann er bara opin til 3-4 á daginn.

Kveðja Kjartan

Kjartan Valdemarsson, 21.4.2007 kl. 12:00

5 Smámynd: Bergþóra Jónsdóttir

... og smörrebröðið á Sorgenfri var líka himneskt.  Fengum okkur tvær sneiðar hvor.  Prófa Slotskælderen hjá Gitte næst. 

Bergþóra Jónsdóttir, 21.4.2007 kl. 20:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bergþóra Jónsdóttir
Bergþóra Jónsdóttir

Spurt er:

Á að aðskilja ríki og kirkju?
Er flokkakerfið úrelt?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband