Leita í fréttum mbl.is

Klukk

Maja klukkaði mig, - ég beið eftir þessu, búin að bíða lengi eftir tækifærinu til að flassa.

 

1.  Ég á mér skrýtin áhugamál, eins og ættfræði, handavinnu og grúsk í þjóðleg fræði.

2.  Mamma segir að ég sé skemmtilegasta, glaðværasta og fyndnasta dóttir hennar.  Hún á fimm.

3.  Ég er með ofnæmi og/eða óþol fyrir flestu hráu grænmeti. Get samt borðað rucola og spínat, en t.d. tómatar þurfa að vera soðnir í spað.

3.  Ég á kjóla Cool

4.  Ég er femínisti og jafnréttissinni, en hef áhyggjur af ýmsu. Ég mun til dæmis alltaf berjast gegn sölu á kynlífi í hvaða mynd sem er, að ég tali ekki um mansali.  Samt er ég fylgjandi því að fólk stundi kynlíf í hvaða mynd sem er, og elski hvert annað heitt og mikið og á þann hátt sem það langar til.  Áhyggjur mínar í þessum efnum snúast um það að klámvæðingin geti orðið til þess að takmarka kynfrelsi fólks, ekki síst kvenna.  Ég skilgreini klám sem sölu á kynlífi eða viðskiptakynlíf, en allt annað kynlíf sem frjálsar ástir, hvort sem það er "klámfengið", venjulegt eða einhvern veginn öðru vísi.

5.  Ég elska fisk, ýsu, þorsk, steinbít, karfa, skelfisk, gellur, saltfisk, plokkfisk, kola, skötusel, og engan fisk meir en steikta fiskinn hjá pabba og mömmu.

6.  Ég er sjúk í ilmvötn, sérstaklega ef það er smá patchouli kemur af þeim.  Opium og Karma eru í uppáhaldi.  Elska líka reykelsi og ilmkerti.

7.  Ég er í ljóðanámi hjá Þórði Helgasyni, þar sem ég læri bæði að lesa ljóð og yrkja.  Hef ofboðslega gaman af því.

8.  Uppáhalds hljóðfærið mitt þessa stundina er trommusettið mitt, og uppáhalds tónlistarmaðurinn minn í agnablikinu er Ginger Baker.  Ég sótti tíma hjá Ásgeiri Óskarssyni í fyrra og ætla aftur í vetur. Skipti oft um skoðun í tónlistinni.  Hef gaman af svo mörgu, en dett inn í eitt og annað í lengri eða skemmri tíma.  Stundum ljóðasöng, stundum píanóleik, stundum Led Zeppelin, stundum Verdi, stundum blús... bara eftir því hvernig ég er stemmd.  Fíla Dolly Parton í tætlur, sérstaklega hinn kostulega og femíníska PMS Blues.  Mig dreymir um að sjá og heyra Cream spila á ný á tónleikum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert skemmtilegust, glaðværust og fyndnust, ekki spurning! Nema þegar þú ert upptekin við að chatta á tölvunni, en þá er maður bara svo spældur að einhver annar fái alla skemmtilegu athyglina.

knús

Í

ímsí (IP-tala skráð) 27.7.2007 kl. 03:34

2 Smámynd: Halldór Sigurðsson

og allan þennan fisk

Halldór Sigurðsson, 29.7.2007 kl. 23:42

3 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Fiskurinn og trommurnar fá mitt atkvæði. Svo og ljóðlistin þó ég sé kannski ekki að gera merkilega hluti þar sjálfur. Tromma sjálfur.

Ævar Rafn Kjartansson, 30.7.2007 kl. 00:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bergþóra Jónsdóttir
Bergþóra Jónsdóttir

Spurt er:

Á að aðskilja ríki og kirkju?
Er flokkakerfið úrelt?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband