Leita í fréttum mbl.is

Verður látinn laus

Af hverju er ég eina manneskjan sem hef eitthvað við þetta að athuga?  Ég ætla því miður að spá því að níðingurinn sem misnotaði dætur sínar verði látinn laus í dag.  Ég hef ekki meiri trú á dómskerfinu en það. 

Djöfull verð ég reið!

Svo eru menn að mótmæla háu bensínverði og berjast fyrir því að fá að keyra þreyttir.  Af hverju ekki að berjast fyrir því sem RAUNVERULEGA þarf að laga,  t.d. því að venjulegt fólk hafi efni á að kaupa í matinn, og að þeir sem þurfa hjálp fái hjálp.  Sagði einhver eitthvað þegar næturvörðurinn í öryrkjablokkinni var reikinn? Mikilvægur öryggisventill fyrir fólk sem þar býr?  Ekki þið, og ekki ég! Grilljón dæmi.  Það eru EKKI BARA yfirvöld sem eru brengluð.  Við erum sjálf svo ömurlega samdauna drullu og skít sem vellur um allt þetta samfélag.  Þetta er að kæfa mann.  Fólk getur ekki staðið upp og andæft, löngu búið að missa fókusinn á réttlæti og sanngirni.  Doði, bara doði og sinnuleysi.  Ég er engin undantekning þar á.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Begþóra.

Innilega sammála þér,ég er sjálfur að reyna að berjast fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega. Og mér blöskrar aðgerðarleysið. Það er eins og stjórnendur þessa lands séu í einhvers konar meðvitundarleysi á allt annað en það sem snýr að þeirra eigin velferð.

Takk fyrir.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 11:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bergþóra Jónsdóttir
Bergþóra Jónsdóttir

Spurt er:

Á að aðskilja ríki og kirkju?
Er flokkakerfið úrelt?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband