Leita í fréttum mbl.is

Saddam og pabbi

Það verður fróðlegt að fylgjast því sem skrifað verður um Saddam Hussein næstu daga og vikur, og því sem spyrst út um líf hans.  Hvers konar maður myrðir eigin þjóð?  Það sem gerir þetta afar forvitnilegt í mínum huga er þetta:

  • Hann elskaði dætur sínar
  • Hann gaf smáfuglunum
  • Hann hafði gaman af að lesa

Ef ég væri ekki að vitna í fréttir, þá hefði þessi upptalning alveg eins getað átt við pabba minn, - þetta er skuggalega líkt honum  - alveg eins "so far"- og pabbi er hvorki harðstjóri né eitthvað þaðan af verra. 

Kannski að þetta segi manni að engum sé alls varnað og að biskupinn hafi haft á réttu að standa þegar hann talaði um iðrunina.    Einhvers staðar er sá strengur sem gerir okkur öll að manneskjum, og þótt iðrun þurrki ekki burt voðaverk og glæpi, þá er hún til marks um obbolítinn guð í sálinni, og eitt er víst að öll vorum við einu sinni litlu krúttin hennar mömmu sín...

...en einhvers staðar á leiðinni skildi á milli pabba og Saddams


mbl.is Saddam gaf fuglunum og las í fangelsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bergþóra, þetta eru undarlegar hugleiðingar hjá þér. Þótt ég hafi fagnað þegar Saddam var hengdur, er mér ljóst að hann var mannvera. Ég bar samt minni virðingu fyrir honum en geitungnum sem ég drap í sumar. Allir menn eru að einhverju (h)leyti mannlegir og það jafnvel þótt þeir séu Satan (Saddam) í mannsmynd. Satt að segja hneykslar mig, að þú skulir stilla Saddam upp við hlið föður þíns.

Þú nefnir að Saddam hafi haft nokkrar jákvæðar hliðar:

  • Hann elskaði dætur sínar
  • Hann gaf smáfuglunum
  • Hann hafði gaman af að lesa
  • Eins og faðir þinn, átti Saddam þrjár dætur, sem hann vafalaust elskaði. Hann elskaði líka tengdasyni sína, bræðurna: Hussein Kamel al-Majid og Saddam Kamel al-Majid, sem hann lét myrða 1996. Saddam Hussein var frændi og líklega "gvuðfaðir" þessara bræðra og báru þeir nöfn hans.
  • Sagt er að Saddam hafi gefið smáfuglum fæði, á meðan honum var haldið í fangelsi. Við skulum vona að þarna hafi vottað fyrir kærleika hjá Saddam. Kærleika af þessu tagi finnum við einnig hjá þeim Íslendingum sem finna þörf hjá sér að drepa hvali á úthafinu og þeim sem finnst hetjulegt að drepa smáfugl eins og rjúpuna. Því miður verður að telja biskup þjóðkirkjunnar í þessum kærleiksríka hópi.
  • Var ekki Stalín átrúnaðargoð Saddams ? Líklega hefur hann haft sérstaka ánægju að lesa um hvernig Stalín tókst að drepa milljónir manna og deyja að lokum úr ofáti.

Þú spyrð: "Hvers konar maður myrðir eigin þjóð?" Þessu er til að svara, að það er maður eins og: Stalín, Hitler og Idi Amin Dada. Sagt er að Idi Amin hafi tekið sér titilinn:

"His Excellency President for Life, Field Marshal Al Hadji Doctor Idi Amin, VC, DSO, MC, Lord of All the Beasts of the Earth and Fishes of the Sea, and Conqueror of the British Empire in Africa in General and Uganda in Particular."

Ég hef það einnig fyrir satt, að Idi Amin hafi étið þegna sína og haft sérstakt dálæti á ungum stúlkum. Hann var sannur múslimi og fylgdi Kóraninum í einu og öllu. Rætt um snöru í hengds manns húsi ! Kærleikur virðist ekki koma fyrir í Kóraninum. Saddam og Idi Amin kyrja nú báðir í himna-mosku Múhameðs.

Hugleiðingar frá 30.12.2006: http://dav.blog.is/blog/dav/entry/95356/#comments

Loftur Altice Þorsteinsson

Loftur Altice Þorsteinsson (IP-tala skráð) 7.1.2007 kl. 15:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bergþóra Jónsdóttir
Bergþóra Jónsdóttir

Spurt er:

Á að aðskilja ríki og kirkju?
Er flokkakerfið úrelt?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband