Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2010

Ríkið standi við sitt!

Það er auðvelt að gagnrýna RÚV fyrir niðurskurð, en þingmenn ættu að líta í egin barm.  Það var ekki fyrr búið að ákveða nefskatt fyrir RÚV þegar ákveðið var að nota hluta af nefskattinum í eitthvað allt annað en Ríkisútvarpið.

Það myndi ég kalla ólöglega skattheimtu. Peningurinn er rukkaður inn í ákveðnum tilgangi, en að hluta notaður í annað.  RÚV veitir ekkert af sínu.


mbl.is Þjónustusamningur við RÚV til skoðunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki í samræmi við hefð

Mannanafnanefnd segir það ekki í samræmi við ritreglur íslenskra nafna að skíra barn Liljurós.  Þetta er ekki rétt, og dæmin til vitnis um það mörg.  Nefni hér nokkur:  Geirjón, Jóngeir, Annadís, Annamaría, Geirfinnur.  Ef lengra er skoðað til fortíðar, má segja að sterk hefð sé fyrir því að tengja tvö sjálfstæð nöfn saman í eitt. Flest nöfn sem byrja á "Þór"  eru t.d. samsett úr tveimur sjálfstæðum nöfnum, þótt ó-ið hafi sumsstaðar breyst í o.  Þórbergur, Þorgils, Þórgrímur o.s.frv....

 

Svo vona ég að Liljurós, (þ.e. með u-i, ekki Liljarós), verði leyft sem karlmannsnafn.  Annað væri kjánalegt.


mbl.is Besti ekki í lagi en Hinrikka samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Bergþóra Jónsdóttir
Bergþóra Jónsdóttir

Spurt er:

Á að aðskilja ríki og kirkju?
Er flokkakerfið úrelt?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband