Leita í fréttum mbl.is

Ekki í samræmi við hefð

Mannanafnanefnd segir það ekki í samræmi við ritreglur íslenskra nafna að skíra barn Liljurós.  Þetta er ekki rétt, og dæmin til vitnis um það mörg.  Nefni hér nokkur:  Geirjón, Jóngeir, Annadís, Annamaría, Geirfinnur.  Ef lengra er skoðað til fortíðar, má segja að sterk hefð sé fyrir því að tengja tvö sjálfstæð nöfn saman í eitt. Flest nöfn sem byrja á "Þór"  eru t.d. samsett úr tveimur sjálfstæðum nöfnum, þótt ó-ið hafi sumsstaðar breyst í o.  Þórbergur, Þorgils, Þórgrímur o.s.frv....

 

Svo vona ég að Liljurós, (þ.e. með u-i, ekki Liljarós), verði leyft sem karlmannsnafn.  Annað væri kjánalegt.


mbl.is Besti ekki í lagi en Hinrikka samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Óskar Jónsson

Ég ætlaði bara að benda þér á að nafnið LiljUrós er leyft sem kvenmannsnafn, eins og gefið er í skyn í síðustu setningu fréttarinnar. 

Nöfnin Geirjón, Annadís og Annamaría eru ekki á skrá yfir leyfð nöfn.  Jóngeir og Geirfinnur eru það aftur á móti.

Sigurður Óskar Jónsson, 11.2.2010 kl. 18:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bergþóra Jónsdóttir
Bergþóra Jónsdóttir

Spurt er:

Á að aðskilja ríki og kirkju?
Er flokkakerfið úrelt?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband