Leita í fréttum mbl.is

Heilbrigði og geðheilbrigði

Eftir stendur það, að sá þunglyndi tekur sjálfur ábyrgð á sjúkdómi sínum, hikar við að leita sér hjálpar og hikar við að tala um hlutskipti sitt.

Heilbrigði er orð sem allir skilja. Heilbrigði er notað um það sem er heilt heilsu, og heilbrigð manneskja er sú sem er hraust og laus við kvilla. En ætla má að ekki sé allur krankleiki mannskepnunnar talinn til tilbrigða við heilbrigði; í það minnsta hefur verið búið til sérstakt orð, geðheilbrigði, um heilsufar eins þáttar í því apparati sem manneskjan er. Það er kannski orðhengilsháttur að fjargviðrast yfir þessu orði. Það er talað um líkamlegt heilbrigði - en ótvírætt er að líkamlegt heilbrigði er hlutmengi í heilbrigði, enda er líkamlegt heilbrigði sá mekanismi sem heldur manneskjunni á lífi. Líkamlega veil manneskja er ekki heilbrigð. Það er sérkennilegt að við skulum hafa þurft að búa til sérstakt orð yfir andlegt heilbrigði, þegar orðið heilbrigði ætti að ná jafnt til líkamlegs og andlegs heilbrigðis. Þegar talað er um geðheilbrigði finnst mér eins og það fyrirbæri sé ekki hlutmengi í heilbrigði, það hefur í sér þann tón að það sé eitthvað öðru vísi. Hvers vegna þetta er svona veit ég ekki - og ég veit ekki heldur hverjum fannst ástæða til að tilgreina þetta heilbrigði sérstaklega umfram það "venjulega".

Ég velti því þó fyrir mér hvort þessi skilgreining á andlegri heilsu eigi einhvern þátt í því að gera geðheilbrigði á einhvern hátt frábrugðið almennu heilbrigði í huga fólks og móta þá hugmynd að hægt sé að vera heilbrigður þótt geðheilbrigði sé ekki fyrir að fara. Ég velti því sem sagt fyrir mér hvort hægt sé að vera heilbrigður en um leið ekki geðheilbrigður. Í sundurgreiningunni hlýtur þó að felast, að hægt sé að vera geðheilbrigður en ekki heilbrigður að öðru leyti.

Þetta geðheilbrigðisorð er sérstaklega umhugsunarvert í ljósi þess að margir þeirra sem við geðsjúkdóma glíma hafa sagt að þeir sjúkdómar séu ekki litnir sömu augum og aðrir. (Ég ætla ekki að veigra mér við því að nota orðið geðsjúkdómar; það nota ég með fullri virðingu fyrir þeim sem af þeim þjást. Mér er bara þvert um geð að nota tilgerðarlega og vonda nýyrðið geðraskanir.) Dæmi hafa verið tekin af hjarta- og kransæðasjúkdómum. Það eru þekktir sjúkdómar og viðurkennt að þeir sem af þeim þjást þurfa bráða bót á þeim, annars gæti líf manneskjunnar verið í bráðri hættu. Það þykir engum tiltökumál að tala um þessa sjúkdóma, og talið eðlilegt að fólk fái aðstoð og svigrúm til að ná bata.

Geðsjúkdómar eru á hinn bóginn engan veginn jafn viðurkenndir opinberlega, hvað sem hver segir. Sjálfsagt er það þó mismunandi eftir því hve einkenni þeirra eru alvarleg og sýnileg. Það er þó enn ekki orðið svo að þeir sem haldnir eru geðsjúkdómum treysti sér til að tala um þá á jafn opinskáan hátt og þeir sem þjást af hjartasjúkdómum, gigt, mígreni og slíkum líkamlegum kvillum.

Samt virðist það svo, að flestum þyki það sjálfsagt mál að fólk með geðræn vandamál leiti sér hjálpar - einn varnagli þó; bara ef það hendir ekki það sjálft eða þeirra nánustu. Þunglynt fólk hefur talað um það, að því sé stöðugt ráðlagt að hrista af sér slenið og vera ekki með þessa bölvuðu vitleysu. Með því er verið að halda að þessu fólki að það sé ekkert að því, annað en það, að það þurfi sjálft að taka sig taki til að koma sér aftur á réttan kjöl. Með því er einnig verið að draga úr þeirri staðreynd að þunglyndi sé sjúkdómur sem þarfnist aðhlynningar sérfræðinga á því sviði. Úrtölur af þessu tagi eru enn ótrúlega lífseigar og lýsa fordómum sem geta haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir þann sjúka. Eftir stendur nefnilega það, að sá þunglyndi tekur sjálfur ábyrgð á sjúkdómi sínum, hikar við að leita sér hjálpar og hikar við að tala um hlutskipti sitt. Meðan viðhorf umhverfisins eru enn svo úrelt er skiljanlegt að sá þunglyndi treysti sér ekki til að segja sannleikann þegar hann hringir í vinnuna og tilkynnir forföll. Hann segist vera kvefaður, illa fyrir kallaður, lasinn og slappur, en treystir sér ekki til að segja eins og er, að hann sé kvíðinn og dapur og treysti sér þess vegna ekki til að takast á við verkefni dagsins. En hvað er að því? Ekkert annað en ótti hins sjúka við fordóma. Hjartveikur maður er meðhöndlaður umsvifalaust. Annars er hætta á að hann deyi. Geðsjúkur maður er meðhöndlaður ef hann sjálfur treystir sér til að leita sér hjálpar. Samt er líka hætta á því að hann deyi leiti hann sér ekki hjálpar. Neyð hans er ekki síðri en hins hjartveika. En á meðan hann telur í sig kjarkinn má honum vera ljóst af þeim viðbrögðum sem illu heilli eru enn svo ríkjandi, að heilbrigði og geðheilbrigði er ekki sami hluturinn.

Það hefur komið fram, að um fimmtíu þúsund Íslendingar séu að jafnaði haldnir geðsjúkdómum af ýmsu tagi, og þá sennilega jafnt "léttvægum" sem alvarlegum. Einhvern tíma heyrði ég sagt frá því að forstjóri fyrirtækis hefði farið í veikindaleyfi og tilkynnt að það væri vegna geðrænna erfiðleika. Ætli þeim manni hafi nokkurn tíma verið hrósað fyrir það þor sem hann sýndi með því að segja sannleikann? Ætli hann hafi gert sér grein fyrir því hve margir í hans sporum glöddust í hjarta sínu yfir því að einhver skyldi þora að viðurkenna á sig þetta sem er svo erfitt að tala um? Þeir geðsjúku eru ekki endilega best til þess fallnir að standa upp til varnar sjálfum sér og sínum erfiðleikum. Samfélagið þarf að sýna þeim að þeim sé óhætt; að það skilji að kvillar þeirra séu sjúkdómar sem taka beri alvarlega og að hægt sé að tala um geðsjúkdóma fordómalaust.

Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is

Viðhorf, birt í Morgunblaðinu 27. febrúar, 2002.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bergþóra Jónsdóttir
Bergþóra Jónsdóttir

Spurt er:

Á að aðskilja ríki og kirkju?
Er flokkakerfið úrelt?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 49483

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband