Mánudagur, 12. júní 2006
Nostalgía á Naxos
Það verður erfitt að kveðja Naxos, en samt svo gott að eiga þessa ferð í hjarta mínu þegar ég kem heim. Ég veit að hingað á ég eftir að koma aftur, og vonandi oft. Ég hef verið svo lánsöm að kynnast góðu fólki og eignast vini sem ég veit að ég á eftir að halda sambandi við.
Það besta er að hér hef ég haft tíma með sjálfri mér tíma til að slaka á, tíma til að hugleiða og tíma til að koma ýmsu sem mig hefur langað að sinna í verk. Ég hef ekki bara verið að skrifa í blaðið mitt og blogga þetta af og til, - nú á ég vísi að einhverju sem eru eigin hugrenningar og skáldskapur, - komið í fast form og gæti kannski einhvern tíma orðið að einhverju. Ég hef gaman af því að skrifa, og það hefur sannarlega verið hvatning að vera á þessum yndislega stað og hafa allan tímann í veröldinni fyrir sjálfa mig. Það hefur líka verið frábært að lenda í alls konar ævintýrum hér algjörlega óvænt, - bæði á sjó og landi... ég held að ævintýrin gerist einmitt þegar maður er búinn að losa sig við byrðar hversdagsins og mætir nýjum degi áhyggjulaus og væntingalaus en opinn fyrir líðandi stund.
Ég hef gaman af því að sjá hvað Úlfhildur hefur spjarað sig heima án mín. Hún er sami ljúflingurinn - en komið meira bit í hana. Hún ratar orðið um allt og fer ein sinna ferða ef hún þarf þess með. Fyrst spurði hún hvort hún ætti ekki örugglega að beygja hjá hvíta húsinu með bláu gluggunum. Jú, það var rétt hjá henni..... en við hlógum auðvitað eins og asnar að orðunum slepptum, - hér eru öll hús með bláum gluggum og bláum dyrum. Hún er búin að fá miklu fleiri nöfn en ég, - hún er ekki bara Úllaki, Úllamú og Úllakimú - heldur líka Small Begga, Daughter og Úllitza. Hún skemmtir mömmu sinni með því að lesa upp úr grísku orðabókinni okkar. Hún komst að því að grískir hundar segja ga, en kettir njá, kjúklingar hér segja kókókó, hænur kakaka, en hanar kúkketíkú. Í orðabókinni stóð að grískar kýr töluðu ensku, því þær segðu mu.
Hitinn er mikill þessa dagana og gott að kúra á ströndinni fyrir framan húsið okkar. Algjört letilíf. En samt gerist ýmislegt - hugmyndir kvikna við það að spjalla saman, og við látum okkur dreyma um allt sem hægt er að gera í framtíðinni, og það er auðvitað mjög gaman á sama tíma og maður er að baða sig í núinu. Þetta er gott líf. Á kvöldin er svo stefnan tekin í bæinn - hitta fólk, horfa á fólk, borða, kjafta. Yndislegt að rölta svo heim í heitu kvöldi undir stjörnubjörtum himni. Þetta er tóm sæla.
Beggaki
Athugasemdir
Njóttu síðustu daganna, Begga mín. Ekki hugsa um eyjuna okkar hér uppfrá alveg strax :) Nýttu tímann vel..., njóttu, teygaðu, vertu til, á allan hátt, og mundu að lífið er í dag, dagurinn í dag er í dag, ekki á morgun ! Gríptu augnablikin og smjattaðu á þeim, þau eru best :)
Það var yndislegt að heimsækja þig á eyjuna þína tæru.
Minningin um þá heimsókn er komin í gimsteinasafnið mitt.
S
Sigga (IP-tala skráð) 16.6.2006 kl. 00:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.