Leita í fréttum mbl.is

Smekklaus ađventa Alcan

Ég ţarf ađ hafa mig alla viđ ađ missa mig ekki í meiri háttar pirring ţegar "jólaauglýsing" Alcoa birtist á skjánum.  Á ţetta ađ vera eitthvert ímyndarpepp?  Furđulegt háttarlag ađ nota ađventusálm í henni  og keyra auglýsinguna svo af mestum ţunga ţegar ađventan er liđin.  Hátíđ fer ađ höndum ein...  Smekkleysan er svo toppuđ međ ţví ađ leyfa ekki sálminum ađ lifa til enda heldur klippa aftan af honum síđasta vísuorđiđ, ţannig ađ manni líđur eins manni sé snúiđ viđ niđur á leiđ ţegar mađur á einn metra eftir upp á Everest.  Ef ég man rétt er sálmurinn svona:

Hátíđ fer ađ höndum ein

hana vér allir prýđum.

Lýđurinn tendri ljósin hrein,

líđur ađ tíđum,

líđur ađ helgum tíđum.

 

Ţegar botninn vantar, vantar eitthvađ mikiđ, ekki síđur í lagiđ en ljóđiđ.  Ţetta er ótrúlega ljótt, og furđuleg smekkleysa hjá ţeim sem búa auglýsinguna til.  Ţađ er ekkert hćgt ađ líkja ţessu viđ ţađ ţegar brot úr lögum eru notuđ í auglýsingar, hér er greinilega gert út á lagiđ sjálft, kórinn, einsönginn og kórstjórann.  Ţetta er heldur ekkert venjulegt gling-gló, ţetta er einn elsti og hátíđlegasti ađventusálmur okkar.  Uppstrílađ og samkvćmisklćtt söngfólk stingur líka skelfilega í stúf viđ látleysi lagsins. Ţessi vinnugalli hefđi hentađ fyrir óperettukvöld - ekki ţetta lag.  Ţessi auglýsing fer á toppinn yfir ţćr tíu verstu á árinu, - međ Orkuveituauglýsingunni.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Bergþóra Jónsdóttir
Bergþóra Jónsdóttir

Spurt er:

Á að aðskilja ríki og kirkju?
Er flokkakerfið úrelt?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband