Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Dægurmál

Ódýrt

... að valda annarri manneskju örorku.  Ég geri ráð fyrir því að hluti refsingarinnar sé fyrir húsbrotið og aðrar misþyrmingar, og þá sá aðeins hluti refsingarinnar fyrir fingurtjónið.

 Það þarf að taka harðar á því þegar fólk  skaðar aðra manneskju svo með fullum vilja og vitandi vits.  Þetta er svo ljótt.

 B


mbl.is Klipptu fingur af húsráðanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fráleit hugmynd

Það er vel hægt að sýna Bobby Fischer sóma, þótt ekki sé á Þingvöllum.    Ótrúlegt að fólki skuli detta svona della í hug.
mbl.is Fischer grafinn á Þingvöllum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Firring

Að senda undirmenn sína í leiðangur til að leita að barni til ættleiðingar finnst mér vægast sagt ógeðfellt.  Ef þetta væri henni hjartans mál, þá færi hún sjálf, og tæki það barn sem í mestri neyð er, en léti ekki sortera úr "réttu" börnin, - sennilega mestu krúttin þá, eða hvað?  Þetta er eins og að fara út í búð með innkaupalista sem á stendur 100 gr. hakk, 1 stk barn, 3 epli. 2 l. mjólk.

Er þetta nokkuð skárra en mansal? 


mbl.is Madonna leitar að prinsessu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ritskoðun? Nei!

Ég get ekki annað en undrast fréttaflutning á visir.is af leikritinu sem Reynir Traustason og Jón Trausti sonur hans spinna nú um meinta "ritskoðun" Jóns Helga Guðmundssonar í Byko á tímariti þeirra Ísafold og hafa með þokkalegum árangri dregið Blaðamannafélag Íslands inn í.

Í fyrsta lagi er augljóst að með því að nota orðið "ritskoðun" eru þeir feðgar að væna Jón Helga um að vilja hafa áhrif á ritstjórnarstefnu Ísafoldar.  Það hefur hann ekki gert.  Það sem hann hefur hins vegar gert er að neita að selja tímarítið í verslunum sínum, - það er annað mál, og þar er hann í fullkomnum rétti sem eigandi.  Hafi Jón Helgi gert samning um að dreifa tímaritinu, kann að vera um brot á dreifingarsamningi að ræða, en það er blekking að tala um það sem ritskoðun. 

Ef Ísafold er svona fjandi gott blað, hlýtur fólk að kaupa það þar sem það fæst!

Mig grunar að reyndin sé hins vegar önnur.  Mig grunar að Ísafold standi höllum fæti vegna þess að hún sé hreinlega ekki gott tímarit.   Ef svo er, er það lúalegt og aumingjalegt bragð hjá feðgunum að kokka það upp að ástæðan liggi í ákvörðun Jóns Helga.  Betra að geta kennt honum um, en að horfast í augu við þá staðreynd að blaðið þeirra sé ekki nógu spennandi.

Ályktun Blaðamannafélagsins hlýtur að hafa verið samin í fljótræði - í það minnsta er hún ekki hugsuð til enda.  Það eru fleiri stórfyrirtæki á Íslandi sem hafa ákveðið að sniðganga ákveðna fjölmiðla á ýmsan hátt, og verið í rétti til þess, án þess að Blaðamannafélagið hafi séð ástæðu til að æmta. 

 

 


Trúfrelsið í reynd

Þessi dómur staðfestir enn og aftur að rjúfa þurfi tengsl ríkisins og þjóðkirkjunnar.  Það ríkir ekki trúfrelsi meðan trúfélög standa ekki jöfn gagnvart ríkinu.  Þjóðkirkjan hefur forgjöf sem þarf að afnema í nafni sanngirni og jafnræðisreglu.
mbl.is Ásatrúarfélagið fær ekki aukin framlög úr ríkissjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Múmínpabbi

Samkvæmt Múmínálfaprófinu:

http://quiz.start.no/?p=qplay&quizID=1136

Er ég Múmínpabbi!

Resultat:

Mummipappa

Du er Mummipappa! Du er en drømmer og du drømmer deg ofte bort og inn i eventyr. Du er også en håpløs romantikker.

14.77% har falt innenfor denne kategorien.

 

Mummipappa

Føroyar

Úlfhildur og Sámal að slá í ViðarlundinumEins og Ísland?  ... nee ekki alveg.  En fallegar eru þær, indælar grænar og fólkið vænt og gott.  Við erum búnar að upplifa öll íslensk sumarveður hér á þremur dögum, allt frá steikjandi hita og glampandi sól, til rigningarsudda og roks.  Þetta er frábært!  Ég er búin að hitta nokkra norddjobbara með Úlfhildi og snæða löns með þeim í Norðurlandahúsinum.  Í gær var køyridagur, og við skoðuðum Kirkjubæ, Vestmanna og fleira markvert hér á Straumey, skoðuðum meðal annars húsakynni í Kirkjubæ og Múrinn, sem nú er verið að gera við.  Suðurey og Klakksvík líka á planinu næstu daga.  Ójá, við erum á bíl, sem gerir okkur mögulegt að fara út um allar trissur, eins og hugurinn girnist. Hér er líka margt að sjá.

Færeyingar eiga stórkostlegt mál, afburða skemmtilegt, og götunöfin hér eru samfelld gleði.  Pedda við Stein, heitir ein þeirra, Undir berginum er önnur, Í fjósinu, Á heygnum.... og svo mætti áfram telja.  Óluvugøta er í uppáhaldi, en líka Amtmansbrekkan, sem er svo að segja eins og Amtmannsstígurinn okkar, og liggur á samsvarandi stað, ofan úr gamla bænum, og niðrí miðbæ. 

Kathrine, Úlfhildur og LindaÉg sá kunnuglegt andlit niðri við höfn á mikukvøld, það var Brynja, á leiðinni að taka niður flaggið í sendiráðinu.  Sátum og spjölluðum svolitla stund.  Erum næst á leið í SMS að heilsa upp á Gissur Patursson.

 

  


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Bergþóra Jónsdóttir
Bergþóra Jónsdóttir

Spurt er:

Á að aðskilja ríki og kirkju?
Er flokkakerfið úrelt?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband