7.6.2008 | 17:09
Lágtæknin lifir!
Fresta nýja spítalanum? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2008 | 10:43
Ekki meiða bangsa!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
1.6.2008 | 12:45
Hvar er hjálmurinn?
Ósabraut ekki fyrir bíla? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
30.5.2008 | 10:15
Það á að láta þetta fólk í friði!
Myndir nást af óþekktum ættbálki í Brasilíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.5.2008 | 11:16
Hvar eru Maha og Renda?
Hér er pistill sem ég skrifaði í Morgunblaðið fyrir fjórum árum. Mér finnst hann viðeigandi hér þótt Sharon og Arafat séu báðir farinir.
Í sjónvarpinu sé ég hús sem búið er að jafna við jörðu og konu sem fórnar höndum í rústunum og kallar á heiminn sér til bjargar. Er þetta Maha? Er hún orðin svona núna?
Árin líða, og langt síðan ég týndi vinkonum mínum út í heiminn. Það líður þó varla sá dagur að mér verði ekki hugsað um það hvað þær Maha Abu-Ayyash og Renda Abu-Rayyan hafast að núna. Ég hef ítrekað reynt að hafa uppi á þeim, en án árangurs. Ég heyri af voðaverkum Palestínumanna í Ísrael og voðaverkum Ísraelsmanna í Palestínu og hugsa stöðugt um það hvert þeirra hlutskipti sé í þessum hörmungum.
Í sjónvarpinu sé ég hús sem búið er að jafna við jörðu og konu sem fórnar höndum í rústunum og kallar á heiminn sér til bjargar. Er þetta Maha? Er hún orðin svona núna? Ég les um konu sem gekk með sprengju innanklæða og tortímdi sjálfri sér og öðru blásaklausu fólki í þessari vonlausu baráttu. Var þetta Renda? Myndi hún geta gripið til slíkra voðaverka? Ég heyri af konu í barnsnauð sem situr undir kúlnahríð í bíl sínum meðan maður hennar er drepinn og tengdafaðir særður til ólífis. Var þetta kannski Maha? ...eða Renda?
Dag frá degi vaxa áhyggjur mínar af mínum gömlu skólasystrum sem ég svo ólánlega missti samband við. Það er kannski ekki að undra eins og ástandið er. Ég spyr mig hvort mér væri sama um þetta ástand ef ég þekkti ekki fólk af holdi og blóði sem hrærist í því. Varla; en sennilega tek ég það nær mér en ella væri fyrir þessa gömlu vináttu. En nú finnst mér komið nóg. Palestínumenn kalla nánast daglega á alþjóðasamfélagið og sárbæna það um aðstoð við að koma á friði. Ekkert gerist. Enn einn sendiboðinn frá Bush er sendur á svæðið, og Sharon lýsir yfir vilja til að ræða frið. Krafan um að Arafat aðhafist eitthvað hljómar ótrúlega ótrúverðug á meðan honum er haldið föngnum á afmörkuðum skika í Ramallah, sem í dag er að verða að rústum einum. Og enn sit ég hér og spyr, hvar eru Maha og Renda?
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
Viðhorf, birt í Morgunblaðinu 13. mars, 2002.
Lýsa stuðningi við Magnús Þór | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.5.2008 | 17:06
Ömmu með!
.... og hvað svo? Þriggja mánaða pása og svo aftur út á götu?
Svona kútar eiga að fá bílprófið þrítugir, og ættu ekki að fá að keyra öðru vísi en að vera með ömmu sína í bílnum.
Tekinn á 140 í Svínahrauni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
21.5.2008 | 19:43
Frítt fæði!
Ég hugga mig við það, að þessi fangi, skuli nú vera kominn í frítt fæði hjá þjóðinni sinni næstu fimm mánuði. Persónulega sé ég ekki eftir matnum oní hann, þvert á móti gleðst ég inn að hjartarótum yfir hverri krónu sem skattmann dregur af mér og fer í það að fæða kauða. Svo vona ég að það verði með fleiri eins og mig, að sú staðreynd, að hann sé á fæði hjá þjóðinni í fimm mánuði, dragi smá úr samviskubitinu yfir því að hafa búið til svo ömurlegt samfélag, að fólk þurfi að stela sér til matar.
Það hefðu nú kannski verið gustuk hjá héraðsdómi, og lausn á vanda mannsins að ráða hann sem matráð í eldhúsi héraðsdóms.
Stal súpu og fer í fangelsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.5.2008 | 19:26
Óviðfelldin málsvörn
Magnús Þór Hafsteinsson var í Íslandi í dag áðan, þar sem hann útskýrði hvers vegna hann er á móti því að bjóða 60 flóttamönnum til Akraness. Hann sagði meðal annars:
Evrópa og Írak eru ólíkir menningarheimar, það vita allir sem skoðað hafa söguna.
Írak er svo rosalega brotið land.
Þetta er fólk sem fór frá Palestínu 1948 og hefur búið í Írak síðan. Það er ekki hægt að kalla þetta Palestínumenn, þetta eru Írakar.
Auðvitað er miklu betra að hjálpa fólki í sínum heimkynnum.
Því segi ég og spyr:
Menningarheimar Bödda róna og Björgólfs Thors eru ólíkir, þeir búa sáttir í sama landi - eru flóttamennirnir ekki annars að koma frá sama menningarheimi og okkar bráðskemmtilega forsetafrú?
Ætti fólk frá "brotnu landi" ekki að vera sérlega velkomið, og hafa sérstakan forgang í landvist?
Hvert eiga Palestínumenn sem verða landflótta í Írak að fara?
Hvernig er hægt að hjálpa fólki í "sínum heimkynnum" ef það er landlaust flóttafólk?
Óttalegt bull er þetta í stjórnmálamanninum er það að þetta sé ekki nægilega undirbúið. Rauði krossinn á Íslandi er þekktur að því að undirbúa komu flóttamanna sérstaklega vel.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.4.2008 | 11:01
Verður látinn laus
Af hverju er ég eina manneskjan sem hef eitthvað við þetta að athuga? Ég ætla því miður að spá því að níðingurinn sem misnotaði dætur sínar verði látinn laus í dag. Ég hef ekki meiri trú á dómskerfinu en það.
Djöfull verð ég reið!
Svo eru menn að mótmæla háu bensínverði og berjast fyrir því að fá að keyra þreyttir. Af hverju ekki að berjast fyrir því sem RAUNVERULEGA þarf að laga, t.d. því að venjulegt fólk hafi efni á að kaupa í matinn, og að þeir sem þurfa hjálp fái hjálp. Sagði einhver eitthvað þegar næturvörðurinn í öryrkjablokkinni var reikinn? Mikilvægur öryggisventill fyrir fólk sem þar býr? Ekki þið, og ekki ég! Grilljón dæmi. Það eru EKKI BARA yfirvöld sem eru brengluð. Við erum sjálf svo ömurlega samdauna drullu og skít sem vellur um allt þetta samfélag. Þetta er að kæfa mann. Fólk getur ekki staðið upp og andæft, löngu búið að missa fókusinn á réttlæti og sanngirni. Doði, bara doði og sinnuleysi. Ég er engin undantekning þar á.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.4.2008 | 10:19
Ekki í haldi?
Braut gegn stúlku í átta ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.4.2008 | 11:15
Skelfing
Fundu 160 óþekkt þorp í frumskógum Kongó | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.2.2008 | 03:19
Samsæriskenning um Evróvisjón
Ég missti af úrslitunum, var upptekin við að hlusta á alvöru tónlist í Laugardalshöll. En hvaða lag er þetta sigurlag? Hvers vegna er það svona ofboðslega óminnisstætt? Rámar í þennan söngvara, sem er gjörsamlega flatur, hef heyrt Regínu syngja vel einhvern tíma. Annars er dapurlegt hvað þessi keppni er laus við húmor, sköpunargleði og háska, - með öðrum orðum, laus við að vera spennandi og skemmtileg. RÚV hefur líka gert hana óþarflega langdregna og leiðinlega með tilhöguninni eins og hún er búin að vera að undanförnu. Það hefði verið miklu flottara að hafa þetta bara á einu kvöldi og aðeins færri lög - þau hefðu hvort eð er flest mátt missa sín.
Samsæriskenning mín er á þá leið, að þar til árið 2010 verði einungis send í keppnina lög sem munu örugglega tapa, - því fyrr en Tónlistarhúsið er risið getur RÚV ekki haldið keppni hér svo vel sé.
Þessi úrslit staðfesta kenninguna.
Eurobandið fer til Serbíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.1.2008 | 16:49
Ódýrt
... að valda annarri manneskju örorku. Ég geri ráð fyrir því að hluti refsingarinnar sé fyrir húsbrotið og aðrar misþyrmingar, og þá sá aðeins hluti refsingarinnar fyrir fingurtjónið.
Það þarf að taka harðar á því þegar fólk skaðar aðra manneskju svo með fullum vilja og vitandi vits. Þetta er svo ljótt.
B
Klipptu fingur af húsráðanda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.1.2008 | 12:20
Ástin!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.1.2008 | 09:01
Sorg
Björn Ingi úr Framsóknarflokki? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.1.2008 | 08:46
Fráleit hugmynd
Fischer grafinn á Þingvöllum? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2007 | 00:12
Firring
Að senda undirmenn sína í leiðangur til að leita að barni til ættleiðingar finnst mér vægast sagt ógeðfellt. Ef þetta væri henni hjartans mál, þá færi hún sjálf, og tæki það barn sem í mestri neyð er, en léti ekki sortera úr "réttu" börnin, - sennilega mestu krúttin þá, eða hvað? Þetta er eins og að fara út í búð með innkaupalista sem á stendur 100 gr. hakk, 1 stk barn, 3 epli. 2 l. mjólk.
Er þetta nokkuð skárra en mansal?
Madonna leitar að prinsessu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.12.2007 | 19:01
Ritskoðun? Nei!
Ég get ekki annað en undrast fréttaflutning á visir.is af leikritinu sem Reynir Traustason og Jón Trausti sonur hans spinna nú um meinta "ritskoðun" Jóns Helga Guðmundssonar í Byko á tímariti þeirra Ísafold og hafa með þokkalegum árangri dregið Blaðamannafélag Íslands inn í.
Í fyrsta lagi er augljóst að með því að nota orðið "ritskoðun" eru þeir feðgar að væna Jón Helga um að vilja hafa áhrif á ritstjórnarstefnu Ísafoldar. Það hefur hann ekki gert. Það sem hann hefur hins vegar gert er að neita að selja tímarítið í verslunum sínum, - það er annað mál, og þar er hann í fullkomnum rétti sem eigandi. Hafi Jón Helgi gert samning um að dreifa tímaritinu, kann að vera um brot á dreifingarsamningi að ræða, en það er blekking að tala um það sem ritskoðun.
Ef Ísafold er svona fjandi gott blað, hlýtur fólk að kaupa það þar sem það fæst!
Mig grunar að reyndin sé hins vegar önnur. Mig grunar að Ísafold standi höllum fæti vegna þess að hún sé hreinlega ekki gott tímarit. Ef svo er, er það lúalegt og aumingjalegt bragð hjá feðgunum að kokka það upp að ástæðan liggi í ákvörðun Jóns Helga. Betra að geta kennt honum um, en að horfast í augu við þá staðreynd að blaðið þeirra sé ekki nógu spennandi.
Ályktun Blaðamannafélagsins hlýtur að hafa verið samin í fljótræði - í það minnsta er hún ekki hugsuð til enda. Það eru fleiri stórfyrirtæki á Íslandi sem hafa ákveðið að sniðganga ákveðna fjölmiðla á ýmsan hátt, og verið í rétti til þess, án þess að Blaðamannafélagið hafi séð ástæðu til að æmta.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.10.2007 | 16:59
Trúfrelsið í reynd
Ásatrúarfélagið fær ekki aukin framlög úr ríkissjóði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
19.10.2007 | 12:38
Múmínpabbi
Samkvæmt Múmínálfaprófinu:
http://quiz.start.no/?p=qplay&quizID=1136
Er ég Múmínpabbi!
Resultat:
Mummipappa
Du er Mummipappa! Du er en drømmer og du drømmer deg ofte bort og inn i eventyr. Du er også en håpløs romantikker.
14.77% har falt innenfor denne kategorien.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Spurt er:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- September 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Janúar 2009
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Mars 2006
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- ulfhildur
- hallsson
- blues
- systapista
- birtab
- vitinn
- hoskuldur
- konur
- arnim
- ragnhildur
- eggmann
- kjarvald
- hrafnaspark
- torfusamtokin
- theld
- konukind
- jullibrjans
- hugsadu
- bleikaeldingin
- einherji
- jenni-1001
- annapala
- vglilja
- halla-ksi
- volcanogirl
- kristinast
- daath
- mariakr
- soley
- arnigunn
- aevark
- ragnarfreyr
- ktomm
- hlynurh
- sinfonian
- elvabjork
- raggissimo
- nonniblogg
- vitale
- malacai
- ingolfurasgeirjohannesson
- hannibalskvida
- steinibriem
- jea
- vardi
- hildurhelgas